jæja, vonum að þetta hafi verið nóg!Snjólaug Svala Grétarsdóttir

jidúddamía..þá er maður bara vonandi búin með HR ? .. ég set spurningamerkið við það því að ég var í síðasta prófinu mínu í dag og er bara ekki alveg 100% áðí skilöru..:) hihi.. svo eru tvö próf eftir í ÍAK og þá er ég good too go út í sumarið :)

þá kemur að nýjum markmiðum .. sumarmarkmiðunum .. þau eru meðal annars að vera dugleg á línuskautum, fara í útilegu með stelpunum.. og auðvitað sumarbústað líka ;) fara uppá esjuna, í heiðmörk, bláa lónið.. komast í geggjað form.. læra að zone-a almennilega.. njóta þess að hafa minna að gera og SÆTTA MIG VIÐ ÞAÐ! sem verður líklega stærsta verkefnið mitt hingað til.. að sætta mig við að hafa lítið að gera og hafa tíma til að gera eitthvað annað en læra og vinna.. það verður spes..

í tilefni að því að ég er æði ætla ég líka að læra á gítar og vera dugleg að syngja.. missionið er tekið á black bird með bítlunum.. svona fyrst til að byrja með.. og svo ennþá fleiri lög :)

annars fagnaði ég gengishruni íslensku krónunnar með því að skella mér til London eftir fyrrihluta prófanna.. það var spennandi.. hehe.. kom heim með nokkra vivienne westwood hluti.. hehe.. :oS meðal annar þessa skó ! elskaðá !

Mellisa dragon heart

Ætla að vera geðveikt leidí þegar ég útskrifast.. :) í hAwt skóm ;) en auðvitað kom ég líka heim með útskriftarkjól frá sama merki ;) hehe.. já ég veit.. gengislækkun íslensku krónunnar sem kom 5.maí er mér að kenna! tek það alveg á mig ;) sorry pabbi!

Jáú.. júróvísjón ? eigum við eitthvað að ræða það eða ? stærsta hommahátíð sem haldin er ár hvert ?.. Lítil gay-pride ganga í Moscvu handtekin og sett í fangelsi.. að sögn Palla okkar .. sel það ekki dýrara en ég keypti það.. og segir bara nó comment á það.. en glotti samt út í annað.. hahaha!! talandi um sæta karlmenn.. eða stráka, þessi norsari er BARA 14 ára, já eða ókey.. hann er kannski eldri en samt! hann má eiga það að hann er algert krútt, og sjarminn er æði.. En hann kann ekki að syngja frekar en Ingó Ædol! úbs.. sorry.. slipped out.. hehe.. Ég fór samt í hörku júró partý til soffíu og siggeir þar sem við gæddum okkur á hoho og fengum svo bláberjaosta köku í eftirrétt ala svala.. mjög holl og ljúfeng.. sem og hoho sem siggeir grillaði.. Emma klemma stóð líka fyrir sínu, með því að ráðskast með foreldra sína og skemmta mér með krúttlegum grettum og uppátækjum.. þessi dúlla er náttúrulega tilvonandi núbelsverðlaunahafi ! því verður ekki neitað.. Annars er ég ennþá að bíða eftir að sjá mynd frá þessu kvöldi, því að siggeir tók uppá því að klæða sig í "hópátak valdísar" peysuna mína ;) sem við mikinn fögnuð viðstaddra var mynduð í bak og fyrir.. soffía ? eigum við að ræða það að deila myndunum eða ? ;) hahaha!

Heyrðu halló! Crossfit mótið um helgina síðustu.. var að dæma þrátt fyrir að vera á leið í próf.. Dr.Leifur Geir var ekki alveg sáttur með þetta hjá mér en var samt mjög glaður með að ég skildi vera með ;) Þetta er klárlega það besta sem maður gerir.. taka á því þangað til maður er orðinn svo máttlaus að mann langar að æla ;) haha.. ég skal sko vera með hér eftir ! það er ekkert annað í stöðunni.. mig langaði svo að fara í WOD-in að það var rugl.. en vissi að ef ég gerði það myndi ég æla og vera lengi að ná mér.. tók samt hörkuna á þetta og fór út að hlaupa þegar ég kom heim af leikunum.. þá varð ég ennþá glaðari að hafa EKKI tekið WOD-ið því að þolið mitt er týnt! Ég sá fyrir mér lungnaveikann PUG þegar ég svo til valt upp brekkuna hérna á Reynisvatnsveginum! ekki fögur sjón þar á ferð.. og nú eruðeir sjúkir í mann.. djisöss.. þetta þol verður hér eftir auglýst í LOST AND FOUND og þangað til einhver kemur með það til mín, æft í skjóli nætur þar sem enginn getur horft á mig og sagt að ég sé hlunkur á hraða skjaldböku! hihihi..

Jæja.. annars hlakka ég til að eyða sumrinu með vinum mínum og gera eitthvað kreisí skemmtilegt :)

og ef þú ert vinur minn og þykir vænt um mig vænti ég þess að þú komir í kaffi 13.júní ;)

Over and out!

vinnan - æfingar - skólinn - vinirnir... í þessari röð..Snjólaug Svala Grétarsdóttir

Ég sit í tíma í GARS þessa stundina og hef eiginlega ekkert annað að gera en að blogga því að ég gleymdi gleraugunum mínum heima. Ég tók mér "veikindadag" í dag frá vinnunni af því að ég var svo dugleg í síðustu viku og hef eiginlega ekki stoppað til að ná andanum síðan ég kom suður.. það eru að verða hátt í tveir mánuðir síðan ég kom heim aftur..

Síðan ég kom suður hef ég farið á námskeið hjá vinnunni í Audit 1, fórum til Hveragerðis og gistum þar í tvo daga á Örkinni, lærðum allan daginn og á kvöldin var spjallað saman og reynt að kynnast.. :) Þrír dagar pakkaðir af endurskoðun og aðferðum við endurskoðun.. sumir myndu halda að þetta væri alveg drep leiðinlegt, en reyndar leið tíminn frekar hratt og við lærðum alveg helling.. :)

helgina eftir fórum við international ráðið, skiptinemar og buddiar til Eyja, ég fór í fyrsta skipti til Vestmanneyja í september :) þetta var fáránlega skemmtileg ferð að undanskildri sjóveiki og þeirri skemmtilegu staðreynd að ef ég drekk eitthvað sem er með alkahól innihald meira en malt þá verð ég bara veik.. þessi ferð verður því lengi talin svipuð ferð og detox ferðin með Jónínu Ben til Póllands.. fyrir utan það að hreinsunin hjá mér fór fram í formi ælu en ferðin með Jónínu snýst um að hreinsa út hina leiðina.. smart.. ég veit.. ég fékk nú samt smá þef af þjóðhátíð, greip bjórinn hans krumma og bjórinn hennar audi og velti mér í grasinu.. er það ekki annars það sem maður gerir á þjóðhátíð ?
Hrafn minn var samt rosalega duglegur að passa mig sem og yndið hann Rasmus.. og heilt yfir var þessi ferð alger snilld. Ég veiddi fyrstu lundapisjuna mína og kom henni í hendur mömmu Þórs míns sem var einmitt húsráðandi á gistiheimilinu sem við gistum á.. :)


Audi og Hrafn


Í vikunni á eftir komu mamma og elva suður og við fórum í pæjuferð til Minneapollis þar sem 5 dögum var eytt í Mall of america.. já takk fyrir.. vísakortið fékk að gráta.. ! Ég held samt í alvöru að kurteisi þeirra sem ég hafði samskipti við þarna úti hafi algerlega gert ferðina að því sem hún var.. já og það að ég hafi yfirleitt ekki þurft að snúa mér við til að hala niður úr klósettinu af því að það var eiginlega sjálfvirkt allstaðar.. hahaha.. ég og elva fundum tilvonandi eiginmenn okkar í Abercrombie & Fitch , djöfull fíla ég þá stefnu þeirra að hafa bara ungt,heilbrigt og myndarlegt fólk í vinnu.. Amazing.. :)
Við systurnar keyptum okkur árshátíðar kjóla og ég keypti mér auk þess útskriftarkjól í White house Black market sem er án efa ein af mínum uppáhalds prinsessubúðum núna.. :)
Auðvitað mætti ég líka í GNC til að kaupa Hydroxcut Maxi, þegar mamma sá það síðan fór hún og keypti ársbirgðir af þessu.. hahaha.. það er aldeilis sem maður smitar út frá sér! Tala af sér

MOA


Gula hættan

19.sept var síðan Hrisstingur í KPMG, hann gekk út á það að hlaupa um allt Borgartúnið (8.hæðir + bílakjallari) í ratleik sem skemmtinefndin okkar yndislega hafði skipulagt.. :) síðan bauð Hlynur Partner okkur heim til sín þar sem ég fékk að kynnast hinni rómuðu söngstemmingu hjá karlmönnum KPMG.. úff.. þeir byrjuðu að syngja með lögum úr græjunum kl.20.00 og hættu ekki fyrr en við fórum í bæjinn.. ! hressir.. :) ég sótti svo Krumma minn í securitas partý og einhverja nokkra vini hans og við fórum öll saman á Apótekið þar sem ég og krummi misstum okkur á dansgólfinu í þvílíkum trylling að svona hefur ekki sést sunnan heiða síðan Páll Óskar tryllti dansgólfið fyrir Eurovision 92! Ég get sko ekki beðið eftir að djamma með honum aftur.. svo kynntist ég líka vini Krumma sem var ekkert smá yndæll og gaman að tala við .. Denni heitir hann víst og ég hlakka mikið til að hitta hann aftur undir aðeins eðlilegri aðstæðum en á dansgólfi mansals og kókaíns á Apótekinu.. :)

Þá er komið að því að ræða síðustu helgi, eða helgina sem var að ljúka.. Krummi elskan fór til Þýskalands á BjórFest og tók mig ekki með.. piff.. nei djók.. hann veit að ég hefði ekki verið mikið í því að drekka bjór heldur bara borða súkkulaði eða eitthvað álíka óhollt.. En þess í stað fór ég á Fusion Fitness Festival og skemmti mér líka svona fáránlega vel! Þetta var fyrsta helgin í Fusion Akademíunni sem ég e,r í ofan á allt annað.. ég veit.. En þetta var fáránlega góð helgi, þó að ég hafi ekki gert neitt annað en að hreyfa mig og sofna með strengi.. :) Ég fór í tíma í Core Fitness sem eru styrktaræfingar á pulsubolta (ég vil meina að þetta sé stór limur en hver hefur sína skoðun á máli..) þessi pulsubolti heitir Body-Pod og er alger snilld.. ég keypti mér svona bolta og ætla sko að nota hann eins og ég get, fáránlega gott að gera magaæfingar, rassaæfingar og bakæfingar á boltanum.. Ég fór líka í tíma í K.O.BO. Conditioning hjá Jennifer Phillip, geðveikur tími sem var svona kick box, fokus, stöðvatími.. Svo fengum við að taka fókus á kennarana sem var alveg geðveikt.. :) Síðan fór ég í E-Power sem er svona svipað og Body-Pump, brennslutími með lóðum.. og að lokum á fyrirlestur hjá Fullfrísk meðgönguleikfimi.. Á sunnudeginum braut ég odd af oflæti mínu og fór í Fit-Pilates, nú get ég alveg sagt að það er ekki fyrir mig.. Síðan reyndi ég að fara í pallatíma með svona goove - hip hop ívafi.. EKKI FYRIR MIG.. það er pallatími.. hip hop er alveg fyrir mig en að gera einhver dansspor á pöllum er ekki ég.. mér finnst fólk sem getur þetta alveg amazing og ég er geðveikt ánægð með Erlu Perlu að geta þetta en ég er sko bara því miður ekki þessi týpa.. :oS

Í morgun bárust svo fréttir af því að Ríkisstjórn Íslands er orðinn stærsti hluthafi í Glitni banka, þeim tókst víst ekki að endurfjármagna sig og Ríkisstjórn Íslands lagði inn nýtt hlutafé sem gerði það að verkum að hlutir í bankanum hafa lækkað um sirka 90%. Það er að segja, þeir sem eiga hlutabréf í Glitni eiga núna eftir þessar aðgerðir sirka 90% lægri hlut en fyrir helgi. Hins vegar ef þetta hefði ekki verið gert þá ættu þeir hinir sömu líklega verðlausann hlut eftir sirka tvær vikur.. því miður.. Glitnir hefur verið skeindur af íslenska ríkinu.. smart.. fékk þessa mynd senda frá vinkonu minni áðan.. gaman hvað skrípamynda hönnuðir eru fljótir að taka við sér.. :oP

long time..Snjólaug Svala Grétarsdóttir

já, það er solítið langt síðan maður hefur bloggað.. djísess.. ég er komin í bæjinn, það er ekkert smá gott að koma heim til sín þar sem rúmið manns er og kúra sér eins djúpt oní það og maður getur.. það hefur reyndar tekið doldið á því að ég er að vakna að meðaltali 5 sinnum í nóttunni vegna þess að mér er svo illt í munninum.. helvítis endajaxlar! hvers á maður að gjalda hérna! Ég er eins og fokking hamstur..

Ég tók á móti skiptinemunum mínum á föstudaginn, þær komu frá DK og voru bara hressar þrátt fyrir að hafa verið vakandi frá því kl.2 um nóttina.. aðallega ævintýragjarnar og ég held að þær hafi doldið verið á leiðinni til hvergilands.. ;) krúttin..

Ég var mætt í ræktina á hádegi á laugadaginn til að kaupa mér  nýtt kort í WC, vá hvað það var æðislegt að koma þangað og fara að æfa.. hlakka til á morgun þegar ég fer í kick box eftir langt frí! úFF!!.. það verður erfitt.. en ógeðslega gaman ;) það eitt er víst..
þrátt fyrir nýtt hamstur-útlit þá náði ég á einhvern undarlegann hátt að vera sæt á laugardaginn :) ég fór nefnilega í kveðjupartý til hennar Rósu minnar sem er búin að kveðja klakann og farin að veiða múmínálfa í finnlandi.. Maggi og Palli sóttu mig um kl.9 á laugardagskvöldið og við fórum í N2 til að versla eitthvað algerlega ónothæft handa Rósu.. Þetta er eitthvað thing hjá strákunum.. enduðum á því að kaupa svamp - últra mega huge svamp.. sápukúlur, hallamál og olíutrekt ! Svo var ég fengin til að skrifa á svampinn .. ,,NÆRVERU YÐAR ER EKKI LENGUR ÓSKAÐ Á íSLANDI"..  smart kveðja.. Ég ákvað að gefa henni rósir.. táknrænt sko.. svo var þetta líka rautt þema partý þannig að rauðar rósir áttu vel við.. ;)

eftir partýið fórum við Pétur elskan á vegamót..þar sem ég dansaði við litaðann mann.. doldið spes.. hann var með hendurnar útum allt og einhver búkhljóð þannig að ég flúði af hólmi.. fannst þetta ekkert gaman :oP dró Pétur með mér niður á apótekið þar sem við tók gamlir kallar og fullt af superficial píjum í leit að manni til að sjá fyrir þeim .. jiminn eini!! En í þvögunni fann ég elskuna mína hana Nancy og hann Bjarka .. :) sem er btw geðveikt skemmtilegur gaur..! var alveg að fíla hann.. þó hann sé gamall kall.. :) það var ekkert smá gott að sjá Nancy aftur eftir sumarið, hún er svo mikið yndi þessi elska..
Jójó sem ætlaði að hitta okkur í bænum beilaði heim eftir brúðkaupið sem hún var í hjá Bjellý.. fannst það ekki gaman, það var eiginlega bara ekki eins gaman í bænum og ég var að vonast til.. fannst allir eitthvað svo glataðir, af hverju er maður svona gagnrýninn á fólk ?

á sunnudaginn fékk ég þessa venjulegu sunnudagsveiki, langaði bara til að eiga kærasta sem gæti kúrt með mér og farið í göngutúr og jafnvel heimsókn eitthvert í sunnudagskaffi.. en það lagast.. :)

Hrafn og Ásdís María komu í heimsókn áðan þar sem Ásdís tjáði mér að það væri nú doldið hallærislegt að eiga heima svona ein.. og ég útskýrði fyrir henni að ég ætti heima ein af því að ég ætti ekki kærasta.. hún bara heyrðu jú víst.. og benti á pabba sinn.. hihi.. litla músin.. hins vegar útskýrðum við það fyrir henni að ég væri sko ekki kærasta pabba hennar.. hann væri alltof gamall fyrir mig og væri bara að passa mig af því að ég ætti ekki pabba í reykjavík.. :)  hún vildi sko ekki viðurkenna að ég væri lítil og potaði bara í brjóstin á mér til að sanna mál sitt.. vá hvað ég elska svona litla krakka sem eru alveg að byrja að skilja út á hvað þetta gengur allt saman.. þau spyrja svo skemmtilegra spurninga og gera mann stundum svo vandræðalegann..

jæja,ég byrja í skólanum á mánudaginn.. stundataflan mín er sko ekki stór..  en það gerir mér líka kleift að vinna meira og skrifa BS-ritgerðina..

pís át í bili..
svalan..

80's akureyri ..Snjólaug Svala Grétarsdóttir

ég skil bara ekki af hverju 80's hætti að vera í tísku.. hahah.. miðbær akureyrar var fullur af mömmum, sem endurupplifðu80's áratuginn þar sem þær voru í sínum blóma.. mættu í miðbæinn í 80's dressum sem þær höfðu grafið lengst inn í skáp ásamt djamminu, ruglinu og unglingsárunum.. "ein með öllu" var spes, í staðin fyrir að bærinn fyllist af ungu fólki sem ætlaði sér eitt og aðeins eitt þessa helgi að komast undan foreldra væng og tapa sér á tjaldstæðum bæjarins með vodkapela í hönd og brjóstsykur til að deyfa bragðið, hugsanlega láta berja sig eða berja einhvern svo ekki sé minnst á að láta nauðga sér..þá fylltist bærinn af fjölskyldufólki sem hafði einmitt gert allt þetta á árunum 1980-1990.. það var frábært að sjá fullorðið fólk skemmta sér og gera sér grein fyrir því að þegar kemur að látum þá eru þau engu skárri..

fyrir tvem helgum fór ég með litlu systur mína í borgarfjörð að hlusta á Damien Rice, Magna og hina yndislegu Eivör. við vorum báðar sammála um það að hávaðinn á tjaldstæðinu ætti upptök sín einmitt hjá þeim sem líklega hafa verið á okkar aldri á árunum 1980-1990 ... og nú er systir mín 16 ára og ég 23 ára..

ég hef heyrt það frá fleiri en okkur systrum að fjölskyldufólk sé það fólk sem hafi hvað messtan hávaða á tjaldstæðum landsins.. þau mæta þarna með krakka grislingana sína og hafa hávaða, frá kl.8 á morgnanna til kl.6 á morgnanna.. svoleiðis er það bara.. svo er verið að benda á táninga og segja að þeir séu snar klikkaðir drekkandi áfengi á tjaldstæðum landsins og oftar en ekki eru krakkar bannaðir.. þessir krakkar drepast yfirleitt fyrir miðnætti, ef þeir eru að drekka eins mikið og fjölskyldufólkið.. það get ég alveg sagt ykkur..

þú ert allt..Snjólaug Svala Grétarsdóttir

jæja, komin tími á smá blogg.. ég er nú búin að ná mér af þessu raddleysi og farin að tala eins og ég veit ekki hvað.. fór um daginn og keypti mér skemmtilega bók.. en það er bókin sex and the city um gerð myndarinnar og alla díteila í því hvaða smáatriði skipta skipta máli í myndinni.. auk þess sem það eru myndasíður aftast í bókinni þar sem listað er niður hvaða hönnuðir eiga heiðurinn af fötunum sem vinkonur mínar klæðast í myndinni.. sem er geðveikt :) ekkert smá kúl sko.. ;) ég get til dæmiscarrie sagt ykkur að beltið sem hún er með á miðju myndinni er vintage en það er hægt að finna það á ebay, eins og reyndar allt annað.. skórnir sem hún er í á fyrstu og annari mynd eru Dior Extreme.. Listum þetta niður.. á fyrstu myndinni er hún í Nina Ricci kjól og með Louis Vuitton tösku, miðju myndin er að undanskildum skónum öll vintage en loka myndin sýnir carrie í Nieves Lavi kjól, Armani bol, Tomas Maier peysu í skóm frá Valentino og með prada tösku.. jiminn eini hvað ég væri til í að lifa í þessum heimi.. kannski einhvertíman.. ;) allt í lagi að láta sig dreyma og stefna að því.. það hefst ekkert með því að trúa ekki á sjálfan sig..

Samt mjög töff líka taskan sem hún er með við græna vintage kjólinn, ef vel er að gáð sést einmitt að þarna er komin Eiffel turninn, rómantíkin.. en eins og allir Sex and the city aðdáendur vita þá sótti Mr.Big, Carrie til París eftir að hún hafði flutt þangað með evrópska listamanninum sínum.. að mig minnir.. ;) það var amk rosalega rómantískt..

það er svolítið spes að sjá hvað hún heldur sambandinu til streitu, gefur þessu annað tækifæri, þó að bæði hún hafi sært hann og hann hana.. þurfum við í alvöru að lenda í því að særa ástina okkar og verða særð áður en við áttum okkur á því hvað við viljum ? þarf ástin í alvöru að vera svona erfið ? eða lifi ég bara í einhverju sex and the city drama, þar sem vinkonur mínar ráðleggja mér eitt en hjartað dregur mig annað ? ? já og hvar eru mamma og pabbi carrie ? hvað hafa þau um þetta mál að segja ? vilja þau ekki vita hver þessi maður er sem hefur fangað hjartað hennar ?

~.~.~.~.~.~.~

Ég er að fara að taka á móti skiptistúdent frá Danmörku þegar ég kem loksins suður aftur, er að skemmta mér við að gera þétta dagskrá sem saman stendur af félagslífi, ræktinni, þolfimikennara námi, skóla, vinnu og nóg af stelpuspjalli.. auk þess sem ég er að skipuleggja ferð til kólimbíu :oS það verður brjálað að gera.. I can't wait!
En þessir skiptinemar sem ég tek á móti koma 15.ágúst, en þá er ég líka að mæta á fund með leiðbeinandanum mínum, Mr. Engilbertsson eins og ég vil kalla hann..

~.~.~.~.~.~.~

Ég fylltist örlítilli öfund um daginn, held ég hafi einmitt rætt það við einhvern að flestar stelpurnar sem ég þekki hér á Ak. frá því úr M.A. eða grunnskóla eru allar annað hvort komnar með barn og mann og íbúð, barn og mann, mann og íbúð eða mann og barn á leiðinni.. please select one of the options above.. hvenær lendi ég í svona pakka ? ekki það að þetta sé slæmur pakki .. þetta er eitthvað sem mig dreymir um.. en ég hélt samt í alvöru að ég yrði ein af þeim fyrstu til að fara út í þetta, hef alltaf verið pínu mamma í mér, gömul sál segja margir.. já, en ég varð pínu abbó um dagin einfaldlega útaf því að ég sá gamla vinkonu mína sem ég reyndar tala ekki við í dag, hún var að labba með eiginmanni sínum (já þau eru gift og ja hún er jafngömul mér) með litlu sætu kúluna sína þar sem bumbubúi vex og dafnar.. ég var samt bara abbó í smá tíma en svo varð ég rosalega glöð í hjartanu og fannst þetta æðislegt.. vona svo innilega að hún sé hamingjusöm, og efast reyndar ekki um það.. þetta er draumur flestra held ég.. :)

~.~.~.~.~.~.~

Elva systir og ég erum svo að gera okkur til fyrir bræðsluna í Borgarfirði.. :) hlakka rosalega til, fyrir utan það að við erum báðar jafn þrjóskar og þverar þannig að tjalduppsettningin á líklega eftir að taka á taugarnar.. en það lagast allt þegar ég heyri Damien syngja.. vildi óska að ákveðin einstaklingur væri þarna með mér til að hlusta á 9crimes.. en maður fær víst ekki allt í lífinu..
hlakka samt til að geta farið að hafa augun hálf lokuð..

,,Ever mine, ever thine, ever ours.."



~þig~
kv.svalan

komin norður..Snjólaug Svala Grétarsdóttir

jæja, mánuður í ferðatösku, hagnýt upplýsingakerfi, efasemdir um B.Sc. ritgerðina, sólin sem undrandi reykvíkingar nutu þó.. þetta er allt afstaðið, rigningin er komin aftur til rvk og ég fór norður á akureyri til að reyna að njóta sumarsins og koma einhverju gáfulegu frá mér á blað...

ég hef ætlað mér í nokkurn tíma að skrifa góðum vini mínum en netsambandið hefur ekki alveg verið upp á marga fiska og eina skiptið sem ég hef komist á netið er í vinnunni.. og þá er maður ekki mikið að skrifa bréf til vina sinni.. ég byrja í "nýrri" vinnu á morgun, það er að segja hún er ný að þeim hluta að ég er að fara að vinna með fullt af nýju fólki þó að ég sé enn að vinna hjá kpmg en bara á akureyri..

ætla að setja inn æfingaplan hérna á síðuna og svo langar mig að benda fólki á að skoða woman's health mag.en það er linkur inn á síðuna hérna til hliðar, þar eru óþrjótandi upplýsingar um allt sem tengist heilsu og æfingu.. ég hlakka ekkert smá til að byrja að æfa á fullu hérna fyrir norðan..

en annað,svona fyrir þá sem eru að lesa hérna.. endilega kommentið.. er Bræðslan ekki alveg pott þétt málið í sumar ? 26.júlí Borgarfjörður Eystri, Damien Rice og vinkona mín hún Eivör..? hverjir ætla með ? Ég er sko búin að kaupa miða, bara svo að það sé á hreinu..

vandræðalífið..Snjólaug Svala Grétarsdóttir

í dag er sunnudagur, þegar ég vaknaði var ég illa bólgin í framan, það er klárt mál að þessi junk matur sem ég hef verið að lifa á, cappocino og meira cappocino og pizza.. er að fara með mig..oj.. ég geri þetta aldrei aftur.. ég finn það núna hvað heilbrigt fæði er nauðsynlegt fyrir líkamann minn..
mér þótti nauðssynlegt að fara í sturtu og klæða mig sumarlega þar sem sólin var klárlega að gera góða hluti fyrir utan gluggan minn, líkt og kettirnir sem voru að eðla sig í garðinum fyrir utan.. ætli hann hafi samband við hana á morgun ? það er spurningAusturvöllur hvort eftir djamm atferli katta sé svipað og okkar.. ekki það að ég hafi verið að lenda í eftir djamm sleik nýlega ;) mætti alveg fara að gerast.. hef ekki verið mikið að gefa kost á mér á djamminu hvort sem er þar sem ég er í skólanum.. já krakkar mínir, ég er í sumarskóla, held það hafi komið fram hérna áður.. en núna er ég einmitt uppí skóla að læra undir próf.. já takk fyrir pent.. ekki það að ég sé mikið fan af því að setjast og drekka bjór um miðjan dag en þá er það klárlega eitthvað sem ég væri til í að gera núna, fara á austurvöll og hangsa með bjór í annari og góða bók í hinni.. langar messt í heiminum til þess núna..


ég er búin að vera semí heimilislaus síðan í byrjun júní, það er alveg áhugavert..hef uppá síðkastið verið í íbúðinni hennar auðar minnar, rúmið hennar er alveg fínt, fyrir utan það að íbúðin hennar er í 101.. ég finn það núna hvað ég sakna þess að búa niðrí bæ..væri alveg til í að hafa hafa efni á því að búa í vesturbænum eða jafnvel útá nesi.. það er bara aðeins of næs.. ég og saló mín höfum verið að vinna í íbúðaleitinni og gengur alveg ágætlega, td.fyrir það að ég áttaði mig á íbúð í gær sem væri alveg amazing fyrir okkur.. ég veit samt nákvæmlega hvað mig langar messt til að gera, það er að kaupa mér litla sæta íbúð þarna á þessum slóðum og gera hana upp með lífsförunaut mínum.. humm.. hvenær ætli hann láti sjá sig aftur..

stundum verð ég alveg týnd í því hvað mig langar að gera.. og hef verið það núna upp á síðkastið.. mig langar eina stundina til að fara út í meistaranám til Barcelona sem krefst þess að ég komist inn í skóla sem er mjög vinsæll og heitir Instituto Europea di Design eftir það þarf ég að flytja til annars lands sem er ótrúlega spennandi og geðveikt gaman.. en á sama tíma flytja frá fólki sem égBarcelona að stofna mitt eigið fyrirtæki, flytja inn mínar eigin vörur og annað hvort meika það eða renna á rassgatið.. hvort heldur sem er lærir maður ótrúlega mikið á því.. auk þess get ég alltaf menntað mig hér heima.. en ekki í nákvæmlega því sem IED býður uppá.. elska og manni sem ég sakna og mun sakna.. Á hinn bóginn gæti ég hætt að vera með skuldbindingarfóbíuna sem ég fékk aftur núna þegar sambandið sem ég hafði opnað mig algerlega fyrir (í fyrsta skipti) endaði.. fundið mér vinnu hér á Íslandi og reynt að koma undir mig fótunum og eignast eitthvað.. Ég veit um fullt af hluti sem ég væri til í að gera hérna heima, væri meira en lítið til í þannig að ég er eiginlega doldið týnd.. ég ætla að taka sumarið í að átta mig á lífinu.. það væri náttúrulega best af öllu að taka fuglinn minn og flytja út, finna sæta íbúð í Barcelona og læra.. En ég held að þessi fugl vilji helst vera vaðfugl hérna heima á Íslandi..

Velja og hafna.. það er næst á dagskrá hjá mér.. svo er víst.. en fyrst þarf ég að klára þennan skóla sem rukkar hvorki meira né minna en 60þús fyrir 3 einingar í sumarskóla.. takk fyrir pent.. ! mánaðarleiga með saló í 101.. ! þar fór það fyrir lítið..

laugardagurSnjólaug Svala Grétarsdóttir

jæja, stelpukvöldið okkar var flutt til og við saló tókum kósý rólegheit í gær, heima hjá mér..henni..okkur.. tókum myndina Hard Candy með Heath Ledger.. planið var sko að taka mynd með einhverjum ótrúlega heitum og sætum gaur.. og þar sem við vorum báðar rosalega ástfangnar af Heath og ætluðum báðar að verða kærastan hans.. þá varð Hard Candy klárlega fyrir valinu.. Heath
myndin var reyndar doldið átakanleg á pörtum þar sem þau voru bæði rosalegir heróínsjúklingar en hins vegar var Heath alveg rosalega fallegur.. og ástin á milli þeirra, það er að segja hans og Candy, var rosaleg.. þegar þau voru að byrja saman og þannig.. eftir að allt fór að fara niður á við var samand þeirri miður fallegt.. en Heath var samt alltaf jafn fallegur..
Við ætluðum að lakka á okkur neglurnar en við vorum eitthvað svo rosalega þreyttar að við sofnuðum hlið við hlið í rúminu mínu.. rosalega dúllulegar.. sérstaklega þar sem við vorum að fara að taka rosalegann dag í æfingu..

hlustaði samt á Cannonball nokkrum sinnum í gær.. með tár í augunum.. saló fékk meira að segja líka tár í augun, þessi elska..

það undarlega sem gerðist í nótt er að ég vaknaði í morgun og hafði farið úr náttbolnum mínum í svefni.. það er greinilegt að ég er búin að fara aðeins of mikið í sameiginlega hópsturtu með trillunum og líður frekar undarlega í fötum nálægt þeim.. eða eitthvað.. kannski var saló að reyna við mig.. ég veit ekki.. sem betur fer var ég í brjóstarhaldara innanundir náttbolnum samt..

dagurinn í dag byrjaði á þrekhring í Laugum kl.10.30 tókum alvarlega á því..síðan fórum við heim í smá mat, haframjöl með kanil,prótein og sojamjólk ala Saló..
það var og er grenjandi rigning úti en við mættum samt galvaskar í kvennahlaupið, þar sem saló stemmdi á 10 km en ég hins vegar á 5 km þar sem ég er ekki vön því að hlaupa úti..
þið sem þekkið mig vitið hvað ég er utan við mig í því að rata í Reykjavík, ég er bara lítil stelpa utan af landi.. og það er sko alveg greinilegt þegar ég er að reyna að rata eitthvað hérna í borg óttans.. heyrðu, mín var að hlaupa, og hlaupa.. en svo hætti hún að sjá 5km merkimiðana og allt í einu voru bara 10km miðar sem ég var að fylgja.. þannig að ég hljóp bara 10km.. :) já feitabollan ykkar hljóp 10km.. þegar ég kom í mark, 5kg þyngri en þegar ég lagði af stað sökum gegndrepa var ég svo stolt af mér að ég tapaði mér næstum..

MACég og saló vorum fljótar að skella okkur í ljós og síðan í sund með líkamana okkar.. sem voru kaldir og blautir upp fyrir haus.. skelltum okkur svo í kringluna eftir sundið til að skoða í All Saints, það gekk ekki betur en svo að við stoppuðum í MAC og misstum okkur aðeins í bleikum varalit og glimmeri.. það var reyndar eitt annað rosalega fyndið sem gerðist þar, píja sem var alveg úti, alveg mega rosalega freðin hélt að ég væri að vinna þarna og þegar ég var búin að segja henni það í annað sinn með ágætu millibili að ég væri bara kúnni.. þá gekk hún einn hring í búðinni og kom svo og bauð mér góðan dag..haha.. sumir eru svo út.. var alltaf að bíða eftir tækifæri til að benda saló saklausu á þetta en það tókst ekki því miður.. verð að leita uppi einhvern stóner til að sýna henni fljótlega.. hhahhah..

allavega, er að fara að gefa tótu minni verðlaunapening og afmæliskoss niðrí bæ þannig að ég ætla að taka mig til að reyna að setja upp smá andlit..svona til tilbreytingar í dag.. búin að vera með rosalega leiðinlegt andlit með bólu í dag.. hún verður sko spörsluð..
jó er í einhverru klípu líka.. búin að ganga um allt í veggfóðursokkabuxum sem mér lýst EKKERT á.. og í einhverju bölvuðu bastli með að klæða sig .. ætla að fara að aðstoða hana við þetta..

þúsund kossar.. og sjáumst á vegó :)

æfingartrillaSnjólaug Svala Grétarsdóttir

sæl þið.. helgin f.norðan var góð, datt reyndar í einhverja eymd og hef ekki komið mér uppúr henni ennþá.. ég hlakka mikið til að fara norður í lok júní, bæði af því að þá er ég að fara heim og líka af því að þá er ég loksins komin í sumarfrí frá skólanum.. þá tekur bara við vinna vinna..
ég hef eiginlega aldrei lent í þessu áður samt, að detta í svona eymd og volæði, það var eitthvað skrítið í gangi í hausnum á mér.. ég er eitthvað týnd.. týnd á milli þess að vera rosalega sár og rosalega reið.. en samt að reyna að rífa mig af stað og halda áfram að æfa..
Við erum nefnilega komnar með nýtt æfingaplan og það krefst þess að við mætum kl.7 í ræktina og svo aftur seinnipartinn...þannig að það þýðir ekki að vera með aumingjann í sér mikið lengur..

það þarf að hrissta rassinn og losa sig við þetta..hef samt rosalega litla löngun til þess að fara í bæjinn og dansa, en trillurnar að taka stelpukvöld á laugardaginn..cosmo og naglalakk á tánslurnar, góð videospóla og spjall.. já og svo ætlum við að fara í gegnum tískublöð eins og við fáum borgað fyrir það, ég og saló erum nefnilega að fara saman í klippingu á mánudaginn, takkda ætlum við fyrir pent..í gær rifum við upp símann og pöntuðum okkur klipp og lit, það er komin tími til að láta aðeins breyta til.. taka til í hausnum á sér.. á fleiri en einn hátt..


æfingar vikunnar eru trylltar, helgin verður snilld, fyrst er æfing í laugum, svo er kvennahlaup, hef skorað á sjálfa mig að taka 5km og svo fær maður að fara í sund..og drekka cosmo um kvöldið..þarf nauðsynlega að sýna stelpunum snilldartakta mína í koktailmálum..

ætla að fara í bréfaskriftir hér með, er að lesa the secret og reyna að ná áttum í lífinu.. hins vegar er ég að sjá fram á að þurfa örlítið að sommera mig upp og versla aðeins..stefnan er tekin á bíkíní kaup fljótlega, held að fyrir valinu verði hummel bíkíní, auk þess sem nýja hummel línan er alveg að gera góða hluti finnst mér.. er búin að liggja inná hummel síðunni í dag að skoða sumarlínuna.. fyrir utan það hvað ég er ótrúlega mikið að fara að kaupa mér reebok skó! þeir eru aðeins of töff..
rebook milkie
eruð þið ekki sammála eða ? ný hummel peysa og þægilegar buxur, reebok skór og hummel bíkíni og ég er ready fyrir sumarið... það held ég nú..

ég sá í dag myndir af henni eyrúnu minni í vínarborg , litla ólétta fallega stelpan mín.. hún og lalli unnustinn hennar eru svo heil og geislandi þessa dagana.. hlakka innilega til að sjá þau í sumar og bumbulínuna líka.. hún verður reyndar alveg kyr í bumbunni þangað til í október en það verður gaman að sjá hana stækka..

ég get alveg viðurkennt það að mig er farið að langa doldið í svona bumbulínu sjálfri, en það koma tímar.. ég þarf aðeins að brasa doldið fyrst og koma mér á þann stað sem ég vil í lífinu áður..

~ uppskriftir héðan og þaðan ~

Auglýsing

~slúðrarinn~

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...