jæja, vonum að þetta hafi verið nóg!Snjólaug Svala Grétarsdóttir

jidúddamía..þá er maður bara vonandi búin með HR ? .. ég set spurningamerkið við það því að ég var í síðasta prófinu mínu í dag og er bara ekki alveg 100% áðí skilöru..:) hihi.. svo eru tvö próf eftir í ÍAK og þá er ég good too go út í sumarið :)

þá kemur að nýjum markmiðum .. sumarmarkmiðunum .. þau eru meðal annars að vera dugleg á línuskautum, fara í útilegu með stelpunum.. og auðvitað sumarbústað líka ;) fara uppá esjuna, í heiðmörk, bláa lónið.. komast í geggjað form.. læra að zone-a almennilega.. njóta þess að hafa minna að gera og SÆTTA MIG VIÐ ÞAÐ! sem verður líklega stærsta verkefnið mitt hingað til.. að sætta mig við að hafa lítið að gera og hafa tíma til að gera eitthvað annað en læra og vinna.. það verður spes..

í tilefni að því að ég er æði ætla ég líka að læra á gítar og vera dugleg að syngja.. missionið er tekið á black bird með bítlunum.. svona fyrst til að byrja með.. og svo ennþá fleiri lög :)

annars fagnaði ég gengishruni íslensku krónunnar með því að skella mér til London eftir fyrrihluta prófanna.. það var spennandi.. hehe.. kom heim með nokkra vivienne westwood hluti.. hehe.. :oS meðal annar þessa skó ! elskaðá !

Mellisa dragon heart

Ætla að vera geðveikt leidí þegar ég útskrifast.. :) í hAwt skóm ;) en auðvitað kom ég líka heim með útskriftarkjól frá sama merki ;) hehe.. já ég veit.. gengislækkun íslensku krónunnar sem kom 5.maí er mér að kenna! tek það alveg á mig ;) sorry pabbi!

Jáú.. júróvísjón ? eigum við eitthvað að ræða það eða ? stærsta hommahátíð sem haldin er ár hvert ?.. Lítil gay-pride ganga í Moscvu handtekin og sett í fangelsi.. að sögn Palla okkar .. sel það ekki dýrara en ég keypti það.. og segir bara nó comment á það.. en glotti samt út í annað.. hahaha!! talandi um sæta karlmenn.. eða stráka, þessi norsari er BARA 14 ára, já eða ókey.. hann er kannski eldri en samt! hann má eiga það að hann er algert krútt, og sjarminn er æði.. En hann kann ekki að syngja frekar en Ingó Ædol! úbs.. sorry.. slipped out.. hehe.. Ég fór samt í hörku júró partý til soffíu og siggeir þar sem við gæddum okkur á hoho og fengum svo bláberjaosta köku í eftirrétt ala svala.. mjög holl og ljúfeng.. sem og hoho sem siggeir grillaði.. Emma klemma stóð líka fyrir sínu, með því að ráðskast með foreldra sína og skemmta mér með krúttlegum grettum og uppátækjum.. þessi dúlla er náttúrulega tilvonandi núbelsverðlaunahafi ! því verður ekki neitað.. Annars er ég ennþá að bíða eftir að sjá mynd frá þessu kvöldi, því að siggeir tók uppá því að klæða sig í "hópátak valdísar" peysuna mína ;) sem við mikinn fögnuð viðstaddra var mynduð í bak og fyrir.. soffía ? eigum við að ræða það að deila myndunum eða ? ;) hahaha!

Heyrðu halló! Crossfit mótið um helgina síðustu.. var að dæma þrátt fyrir að vera á leið í próf.. Dr.Leifur Geir var ekki alveg sáttur með þetta hjá mér en var samt mjög glaður með að ég skildi vera með ;) Þetta er klárlega það besta sem maður gerir.. taka á því þangað til maður er orðinn svo máttlaus að mann langar að æla ;) haha.. ég skal sko vera með hér eftir ! það er ekkert annað í stöðunni.. mig langaði svo að fara í WOD-in að það var rugl.. en vissi að ef ég gerði það myndi ég æla og vera lengi að ná mér.. tók samt hörkuna á þetta og fór út að hlaupa þegar ég kom heim af leikunum.. þá varð ég ennþá glaðari að hafa EKKI tekið WOD-ið því að þolið mitt er týnt! Ég sá fyrir mér lungnaveikann PUG þegar ég svo til valt upp brekkuna hérna á Reynisvatnsveginum! ekki fögur sjón þar á ferð.. og nú eruðeir sjúkir í mann.. djisöss.. þetta þol verður hér eftir auglýst í LOST AND FOUND og þangað til einhver kemur með það til mín, æft í skjóli nætur þar sem enginn getur horft á mig og sagt að ég sé hlunkur á hraða skjaldböku! hihihi..

Jæja.. annars hlakka ég til að eyða sumrinu með vinum mínum og gera eitthvað kreisí skemmtilegt :)

og ef þú ert vinur minn og þykir vænt um mig vænti ég þess að þú komir í kaffi 13.júní ;)

Over and out!

þú ert allt..Snjólaug Svala Grétarsdóttir

jæja, komin tími á smá blogg.. ég er nú búin að ná mér af þessu raddleysi og farin að tala eins og ég veit ekki hvað.. fór um daginn og keypti mér skemmtilega bók.. en það er bókin sex and the city um gerð myndarinnar og alla díteila í því hvaða smáatriði skipta skipta máli í myndinni.. auk þess sem það eru myndasíður aftast í bókinni þar sem listað er niður hvaða hönnuðir eiga heiðurinn af fötunum sem vinkonur mínar klæðast í myndinni.. sem er geðveikt :) ekkert smá kúl sko.. ;) ég get til dæmiscarrie sagt ykkur að beltið sem hún er með á miðju myndinni er vintage en það er hægt að finna það á ebay, eins og reyndar allt annað.. skórnir sem hún er í á fyrstu og annari mynd eru Dior Extreme.. Listum þetta niður.. á fyrstu myndinni er hún í Nina Ricci kjól og með Louis Vuitton tösku, miðju myndin er að undanskildum skónum öll vintage en loka myndin sýnir carrie í Nieves Lavi kjól, Armani bol, Tomas Maier peysu í skóm frá Valentino og með prada tösku.. jiminn eini hvað ég væri til í að lifa í þessum heimi.. kannski einhvertíman.. ;) allt í lagi að láta sig dreyma og stefna að því.. það hefst ekkert með því að trúa ekki á sjálfan sig..

Samt mjög töff líka taskan sem hún er með við græna vintage kjólinn, ef vel er að gáð sést einmitt að þarna er komin Eiffel turninn, rómantíkin.. en eins og allir Sex and the city aðdáendur vita þá sótti Mr.Big, Carrie til París eftir að hún hafði flutt þangað með evrópska listamanninum sínum.. að mig minnir.. ;) það var amk rosalega rómantískt..

það er svolítið spes að sjá hvað hún heldur sambandinu til streitu, gefur þessu annað tækifæri, þó að bæði hún hafi sært hann og hann hana.. þurfum við í alvöru að lenda í því að særa ástina okkar og verða særð áður en við áttum okkur á því hvað við viljum ? þarf ástin í alvöru að vera svona erfið ? eða lifi ég bara í einhverju sex and the city drama, þar sem vinkonur mínar ráðleggja mér eitt en hjartað dregur mig annað ? ? já og hvar eru mamma og pabbi carrie ? hvað hafa þau um þetta mál að segja ? vilja þau ekki vita hver þessi maður er sem hefur fangað hjartað hennar ?

~.~.~.~.~.~.~

Ég er að fara að taka á móti skiptistúdent frá Danmörku þegar ég kem loksins suður aftur, er að skemmta mér við að gera þétta dagskrá sem saman stendur af félagslífi, ræktinni, þolfimikennara námi, skóla, vinnu og nóg af stelpuspjalli.. auk þess sem ég er að skipuleggja ferð til kólimbíu :oS það verður brjálað að gera.. I can't wait!
En þessir skiptinemar sem ég tek á móti koma 15.ágúst, en þá er ég líka að mæta á fund með leiðbeinandanum mínum, Mr. Engilbertsson eins og ég vil kalla hann..

~.~.~.~.~.~.~

Ég fylltist örlítilli öfund um daginn, held ég hafi einmitt rætt það við einhvern að flestar stelpurnar sem ég þekki hér á Ak. frá því úr M.A. eða grunnskóla eru allar annað hvort komnar með barn og mann og íbúð, barn og mann, mann og íbúð eða mann og barn á leiðinni.. please select one of the options above.. hvenær lendi ég í svona pakka ? ekki það að þetta sé slæmur pakki .. þetta er eitthvað sem mig dreymir um.. en ég hélt samt í alvöru að ég yrði ein af þeim fyrstu til að fara út í þetta, hef alltaf verið pínu mamma í mér, gömul sál segja margir.. já, en ég varð pínu abbó um dagin einfaldlega útaf því að ég sá gamla vinkonu mína sem ég reyndar tala ekki við í dag, hún var að labba með eiginmanni sínum (já þau eru gift og ja hún er jafngömul mér) með litlu sætu kúluna sína þar sem bumbubúi vex og dafnar.. ég var samt bara abbó í smá tíma en svo varð ég rosalega glöð í hjartanu og fannst þetta æðislegt.. vona svo innilega að hún sé hamingjusöm, og efast reyndar ekki um það.. þetta er draumur flestra held ég.. :)

~.~.~.~.~.~.~

Elva systir og ég erum svo að gera okkur til fyrir bræðsluna í Borgarfirði.. :) hlakka rosalega til, fyrir utan það að við erum báðar jafn þrjóskar og þverar þannig að tjalduppsettningin á líklega eftir að taka á taugarnar.. en það lagast allt þegar ég heyri Damien syngja.. vildi óska að ákveðin einstaklingur væri þarna með mér til að hlusta á 9crimes.. en maður fær víst ekki allt í lífinu..
hlakka samt til að geta farið að hafa augun hálf lokuð..

,,Ever mine, ever thine, ever ours.."



~þig~
kv.svalan

ævintýraferð á mývatn..Snjólaug Svala Grétarsdóttir

elva systir, afi og amma og ég tókum okkur til og fengum okkur rúnt á mývatn í dag, það var reyndar rigning en við létum það nú ekki á okkur fá, settum rúðuþurkurnar á fullt og bölvuðum veðurfréttamönnunum í sand og ösku.. ;) hittum fyrir tvo eldri ferðamenn í stórugjá, þeir voru eitthvað að brasa við að skoða gjána þegar ég og elva reyndum að fullvissa þá um að það ætti að fara þarna ofaní og synda, ferðamennirnir héldu nú ekki og hlóu bara að okkur.. verst að þeir fá ekkert að upplifa þetta því að klárlega erum við ekki að djóka.. ætlum meira að segja báðar þangað seinna í sumar þegar gott veður.. elva náði síðan að smella þessari mynd af ömmu og afa á leiðinni aftur að bílnum..

afi og amma

þau eru svo yndisleg og góð, vona að ég verði svona þegar ég eldist.. :oD þau eru búin að vera saman síðan amma var 16 ára..

skotin.. takk.. :)Snjólaug Svala Grétarsdóttir

jæja, við tókum ákvörðun í dag að ferðinni væri heitið til kólimbíu í haust.. já.. ég er ekki að grínast, B.Sc. rannsóknin okkar mun greinilega teygja sig vel yfir fjárhag nemans.. en við erum að fjárfesta í menntun og guð hvað þetta verður ótrúlega gaman, lærdómsríkt og mikið ævintýri! við erum sem sagt að fara á cup of excellence ráðstefnuna að hitta kaffibændur í kólimbíu og ræða við þá um kaup og kjör þeirra og viljann til að búa til gæða vöru.. hlakka ekkert smá til, en núna tekur við gríðarlega mikil vinna við að búa til spurningalista og þýða hann yfir á spænsku. Auk þess að skipuleggja ferðina, svo fáum við að fara með Addý hjá Kaffitár í ferðir inn í sveitirnar og skoða ræktunarsvæðin. Úff.. vonum bara að FARC nái okkur ekki.. annars kem ég heim eftir svona 7-10 ár.. með tvo skæruliðakróga og orðin svo tryllt að ég fer og veiði mér matar í kringlunni, eins og hann sæmi sagði við mig í dag..

hins vegar bað hann mig einmitt líka að giftast mömmu sinni.. held að það sé ekki alveg ráðlagt þar sem hún er gift og gifting samkynhneigðra í hvítasunnukirkjunni öruglega ekki alveg við hæfi, að því undanskildu að gifta tvær konur sem ekki eru samkynhneigðar.. held að guð sé ekki alveg til í þannig djók sko.. held að sæmi hafi tekið þessu ágætlega.. enda er ég ekki að hafna mömmu hans.. hún er yndisleg kona.. held bara að tíminn og aðstæðurnar séu ekki alveg réttar.. :)

mig langar til að verða skotin aftur.. fá gæsahúð og fiðrildi í magann.. langar í endalaus kúr (eftir ræktina auðvitað) og sitja saman með fulla skál af ananas og jarðaberjum, hlusta á tónlist og gera eitthvað skemmtilegt um helgar.. mér líður doldið eins og ég sé vængbrotin, held það sé líka að stórum hluta af því að ég er ekki með trillurnar mínar hjá mér, en ég held að það sé líka af því að ég þarf svo mikið að fá að gefa af mér..

í gær setti ég inn myndband hérna.. þetta er sami gaur en annað lag.. búin að vera aðeins að skoða þennan söngvara.. held að hittarinn hans í síðustu færslu sé klárlega besta lagið hans en þetta er líka sætt..



kv.svalan

væntanlega sætasta lag sem ég hef heyrt..Snjólaug Svala Grétarsdóttir

fékk þetta sent frá fyrrum skólafélaga mínum sem ég hef ekki verið í sambandi við lengi.. takk teitur.. þetta lag er æðislegt. :)

sólin loksins farin að skína..Snjólaug Svala Grétarsdóttir

svakalegir strengir hafa tekið sér bólfestu í líkamanum mínum.. hvort sem er í öxlum, maga, baki, höndum eða fótum.. og ennþá mun það versna.. ;) hlakka til ..

ég get sko alveg sagt ykkur að í dag er ég fegin því að vera á ak. að því sögðu þá vil ég benda á þetta lag..



alveg elska þetta myndband, það gefur manni eitthvað svona; ,,já djöfull skal ég sigrast á þessu helvíti og drulla mér á lappir og halda áfram! " ef þið skiljið hvað ég á við..

stelpu pjáslurnar mínar eru á ferð og flugi, jójó og saló á hestamannamóti og nancy á spáni.. ég nefndi það einmitt við mömmu áðan að jójó og saló væru á hestamannamóti og henni varð á að spyrja: ,,og afhverju ? ekki eru þær hestamenn?" ég sagði nei.. en þeirra helsta áhugamál væri klárlega ekki hesturinn.. ;) nú er ég búin að láta þær hljóma eins og einhverjar sóðapjálsur (sem þær og eru) en að sjálfsögðu var tilgangur með þessari ferð á hestamannamót.. þær eru að kynna nýja fyrirtækið sem þær vinna hjá svo að þessi ferð er "strictly" business.. hins vegar er nancy sóðapjásla bara að sóla sig! vona innilega að hún sakni okkar þarna í sólinni.. ;)

ég hef verið sveitt að dansa sólardansinn fyrir hana eyrúnu bumbulínu, hún er nefnilega að koma heim á morgun og það á sko að vera sól á Akureyri í sumar.. takk fyrir pent.. svo að við getum farið í sund og sólað á okkur bumbuna saman.. ;) það er sko algert möst.. milli þess sem við förum svo á nátturunum að fá okkur ís ;) sem er einmitt hægt á Akureyri, það er sko alveg næsta stig fyrir neðan joggarann..

annað sem er að frétta er það að ég skráði mig á kennaranámskeið fusion fitness þannig að næsta haust ætla ég að læra að kenna þolfimi og fleira.. :) hlakka til ..

komin norður..Snjólaug Svala Grétarsdóttir

jæja, mánuður í ferðatösku, hagnýt upplýsingakerfi, efasemdir um B.Sc. ritgerðina, sólin sem undrandi reykvíkingar nutu þó.. þetta er allt afstaðið, rigningin er komin aftur til rvk og ég fór norður á akureyri til að reyna að njóta sumarsins og koma einhverju gáfulegu frá mér á blað...

ég hef ætlað mér í nokkurn tíma að skrifa góðum vini mínum en netsambandið hefur ekki alveg verið upp á marga fiska og eina skiptið sem ég hef komist á netið er í vinnunni.. og þá er maður ekki mikið að skrifa bréf til vina sinni.. ég byrja í "nýrri" vinnu á morgun, það er að segja hún er ný að þeim hluta að ég er að fara að vinna með fullt af nýju fólki þó að ég sé enn að vinna hjá kpmg en bara á akureyri..

ætla að setja inn æfingaplan hérna á síðuna og svo langar mig að benda fólki á að skoða woman's health mag.en það er linkur inn á síðuna hérna til hliðar, þar eru óþrjótandi upplýsingar um allt sem tengist heilsu og æfingu.. ég hlakka ekkert smá til að byrja að æfa á fullu hérna fyrir norðan..

en annað,svona fyrir þá sem eru að lesa hérna.. endilega kommentið.. er Bræðslan ekki alveg pott þétt málið í sumar ? 26.júlí Borgarfjörður Eystri, Damien Rice og vinkona mín hún Eivör..? hverjir ætla með ? Ég er sko búin að kaupa miða, bara svo að það sé á hreinu..

draumur á jónsmessunótt...Snjólaug Svala Grétarsdóttir

ég hef verið í óðaönn að skipuleggja það hvað ég ætla að gera eftir þetta próf, áttaði mig á því áðan að jónsmessa er 24.júní og því upplagt að hlaupa nakin um grundir og safna villtum grösum til að setja undir koddan sinn.. veit samt ekki með það hvort ég hlaupi samt nakin í Miðnæturhlaupinu á Jónsmessunótt sem hefur einmitt fengið það skemmtilega nafn Miðnæturhlaup Poweraid.. humm.. þar fór hefði fyrir lítið og inn komu styrktaraðilarnir.. úff.. ég skal samt lofa að vera ekki að bera mig í laugardalnum þó að það sé að sjálfsögðu freistandi.. hlaupa um nakin og bera það fyrir sig að hafa tapað glórunni í lærdómi og ástarsorg..



Somewhere over the rainbow
Way up high
There's a land that I heard of
Once in a lullaby

Somewhere over the rainbow
Skies are blue
And the dreams that you dare to dream
Really do come true

Some day I'll wish upon a star
And wake up where the clouds are far behind me
Where troubles melt like lemondrops
Away above the chimney tops
That's where you'll find me

Somewhere over the rainbow
Bluebirds fly
Birds fly over the rainbow
Why then, oh why can't I?
Some day I'll wish upon a star
And wake up where the clouds are far behind me
Where troubles melt like lemondrops
Away above the chimney tops
That's where you'll find me

Somewhere over the rainbow
Bluebirds fly
Birds fly over the rainbow
Why then, oh why can't I?

If happy little bluebirds fly
Beyond the rainbow
Why, oh why can't I?

ég var að passa kristján geir litla frænda minn í gærkvöldi.. verð að fá að setja eina mynd hérna af fallegasta frænda mínum.. ég ætla að eignast svona fallegt barn einhvertíman..

Kristján Geir

vandræðalífið..Snjólaug Svala Grétarsdóttir

í dag er sunnudagur, þegar ég vaknaði var ég illa bólgin í framan, það er klárt mál að þessi junk matur sem ég hef verið að lifa á, cappocino og meira cappocino og pizza.. er að fara með mig..oj.. ég geri þetta aldrei aftur.. ég finn það núna hvað heilbrigt fæði er nauðsynlegt fyrir líkamann minn..
mér þótti nauðssynlegt að fara í sturtu og klæða mig sumarlega þar sem sólin var klárlega að gera góða hluti fyrir utan gluggan minn, líkt og kettirnir sem voru að eðla sig í garðinum fyrir utan.. ætli hann hafi samband við hana á morgun ? það er spurningAusturvöllur hvort eftir djamm atferli katta sé svipað og okkar.. ekki það að ég hafi verið að lenda í eftir djamm sleik nýlega ;) mætti alveg fara að gerast.. hef ekki verið mikið að gefa kost á mér á djamminu hvort sem er þar sem ég er í skólanum.. já krakkar mínir, ég er í sumarskóla, held það hafi komið fram hérna áður.. en núna er ég einmitt uppí skóla að læra undir próf.. já takk fyrir pent.. ekki það að ég sé mikið fan af því að setjast og drekka bjór um miðjan dag en þá er það klárlega eitthvað sem ég væri til í að gera núna, fara á austurvöll og hangsa með bjór í annari og góða bók í hinni.. langar messt í heiminum til þess núna..


ég er búin að vera semí heimilislaus síðan í byrjun júní, það er alveg áhugavert..hef uppá síðkastið verið í íbúðinni hennar auðar minnar, rúmið hennar er alveg fínt, fyrir utan það að íbúðin hennar er í 101.. ég finn það núna hvað ég sakna þess að búa niðrí bæ..væri alveg til í að hafa hafa efni á því að búa í vesturbænum eða jafnvel útá nesi.. það er bara aðeins of næs.. ég og saló mín höfum verið að vinna í íbúðaleitinni og gengur alveg ágætlega, td.fyrir það að ég áttaði mig á íbúð í gær sem væri alveg amazing fyrir okkur.. ég veit samt nákvæmlega hvað mig langar messt til að gera, það er að kaupa mér litla sæta íbúð þarna á þessum slóðum og gera hana upp með lífsförunaut mínum.. humm.. hvenær ætli hann láti sjá sig aftur..

stundum verð ég alveg týnd í því hvað mig langar að gera.. og hef verið það núna upp á síðkastið.. mig langar eina stundina til að fara út í meistaranám til Barcelona sem krefst þess að ég komist inn í skóla sem er mjög vinsæll og heitir Instituto Europea di Design eftir það þarf ég að flytja til annars lands sem er ótrúlega spennandi og geðveikt gaman.. en á sama tíma flytja frá fólki sem égBarcelona að stofna mitt eigið fyrirtæki, flytja inn mínar eigin vörur og annað hvort meika það eða renna á rassgatið.. hvort heldur sem er lærir maður ótrúlega mikið á því.. auk þess get ég alltaf menntað mig hér heima.. en ekki í nákvæmlega því sem IED býður uppá.. elska og manni sem ég sakna og mun sakna.. Á hinn bóginn gæti ég hætt að vera með skuldbindingarfóbíuna sem ég fékk aftur núna þegar sambandið sem ég hafði opnað mig algerlega fyrir (í fyrsta skipti) endaði.. fundið mér vinnu hér á Íslandi og reynt að koma undir mig fótunum og eignast eitthvað.. Ég veit um fullt af hluti sem ég væri til í að gera hérna heima, væri meira en lítið til í þannig að ég er eiginlega doldið týnd.. ég ætla að taka sumarið í að átta mig á lífinu.. það væri náttúrulega best af öllu að taka fuglinn minn og flytja út, finna sæta íbúð í Barcelona og læra.. En ég held að þessi fugl vilji helst vera vaðfugl hérna heima á Íslandi..

Velja og hafna.. það er næst á dagskrá hjá mér.. svo er víst.. en fyrst þarf ég að klára þennan skóla sem rukkar hvorki meira né minna en 60þús fyrir 3 einingar í sumarskóla.. takk fyrir pent.. ! mánaðarleiga með saló í 101.. ! þar fór það fyrir lítið..

bíladagar á akSnjólaug Svala Grétarsdóttir

jæja, dagur1 á akureyri.. ég kom norður með flugi í gær, byrjaði á því að fá mér gott að borða hjá elvu sys á strikinu og auðvitað byrjaði hún á að hella í mig, vel gert sko.. eftir það fór ég að hitta benna á græna hattinum.. við vorum búin að plana að hittast og hafa kósí US kvöld með hjálmum, en þeir voru einmitt að spila..

lime og hljómsveitin hans voru að spila á undan hjálmum og ég rétt missti af þeim.. en þegar ég mætti þá var einhver gaur að tala um það fyrir utan að þeir væru alveg massa góðir og hann ætlaði að reyna að fara aftur á tónleika með þeim :) ekkert smá gaman að heyra svona.. :) gummi minn er einmitt að spila á bassa í hljómsveitinni og ég vona innilega að ég eigi eftir að heyra þá spila áður en sumarið er á enda..það var svo gaman að hitta alla aftur og sérstaklega gamla böðla ;) haha.. held ég hafi einmitt látið sindra bregða doldið, hann þekkti mig varla .. held það hafi verið áfengið sem rann um æðarnar frekar en það að ég hafi breyst mikið ;) síðan hitti ég eyþór, egil og fleiri stráklinga, hafði einmitt gaman af því að dansa við eyþór þar sem vinkonur mínar hafa oft rætt það hvað hann sé gordjös, sem hann og er þessi elska.. fallegur að innan sem utan, enda dalvíkingur í húð og hár.. en kvöldið fór vel fram og svo kom elva sys á skúternum að sækja mig í bæjinn..

já við erum með skúter.. og nokkur mótorhjól.. ég einmitt notfærði mér góða veðrið í dag og fór á skúternum heim til helga elskunnar, og dróg hann með mér í sund.. þar sem við tönuðum í drasl.. eða ég tanaði í drasl.. helgi var aðallega í því að endurkasta á mig meiri birtu.. og passa upp á að brenna ekki.. en hann er samt hel tanaður að verða.. :P eftir sundið skilaði ég elskunni heim í barnaafmæli.. og fór sjálf að vera sæt niðrí bæ.. í sumarkjól og alles..

rosalega eru samt margir olíuheilar og túrbótussur í bænum núna.. það er eiginlega vandræðalegt að heyra þetta fólk tala.. og nú vil ég meina að ég sé rugluð og létt í tali.. en jiminn eini.. stundum fær maður algert sjokk..

annars fórum við pabbi svo út á rúntinn, ég leðruð í drasl á mótorhjólinu.. mamma átti að hætta að vinna kl.20 þannig að ég og pabbi komum heim til að undirbúa matinn, við gerðum hvítlaukshumar, salat og ostafyllta sveppi.. oj hvað það er gott.. síðan opnuðum við hvítvínsflösku (eina af mínum uppáhalds) og létum renna í bað f.mömmu.. pabbi er svo mikið endalaust krútt, hann var sko búin að búa svo um að mamma gæti sest niður, fengið sér koníak og farið í bað eftir vinnu, svo yrði maturinn tilbúin þegar hún kæmi upp úr baðinu.. það á eftir að vera erfitt fyrir minn tilvonandi eiginmann að standast kröfurnar sko... pabbi er svo yndislegur kall..

núna er ég á leiðinni í að skrifa verkefnaáætlun f.B.Sc. wish me luck.. ég er svo ekki að nenna því þessa stundina.. langar að leggjast upp í rúm og lesa eftir þennan dag..

kv.úr sveitinni
svala

~ uppskriftir héðan og þaðan ~

Auglýsing

~slúðrarinn~

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...