jæja, vonum að þetta hafi verið nóg!Snjólaug Svala Grétarsdóttir

jidúddamía..þá er maður bara vonandi búin með HR ? .. ég set spurningamerkið við það því að ég var í síðasta prófinu mínu í dag og er bara ekki alveg 100% áðí skilöru..:) hihi.. svo eru tvö próf eftir í ÍAK og þá er ég good too go út í sumarið :)

þá kemur að nýjum markmiðum .. sumarmarkmiðunum .. þau eru meðal annars að vera dugleg á línuskautum, fara í útilegu með stelpunum.. og auðvitað sumarbústað líka ;) fara uppá esjuna, í heiðmörk, bláa lónið.. komast í geggjað form.. læra að zone-a almennilega.. njóta þess að hafa minna að gera og SÆTTA MIG VIÐ ÞAÐ! sem verður líklega stærsta verkefnið mitt hingað til.. að sætta mig við að hafa lítið að gera og hafa tíma til að gera eitthvað annað en læra og vinna.. það verður spes..

í tilefni að því að ég er æði ætla ég líka að læra á gítar og vera dugleg að syngja.. missionið er tekið á black bird með bítlunum.. svona fyrst til að byrja með.. og svo ennþá fleiri lög :)

annars fagnaði ég gengishruni íslensku krónunnar með því að skella mér til London eftir fyrrihluta prófanna.. það var spennandi.. hehe.. kom heim með nokkra vivienne westwood hluti.. hehe.. :oS meðal annar þessa skó ! elskaðá !

Mellisa dragon heart

Ætla að vera geðveikt leidí þegar ég útskrifast.. :) í hAwt skóm ;) en auðvitað kom ég líka heim með útskriftarkjól frá sama merki ;) hehe.. já ég veit.. gengislækkun íslensku krónunnar sem kom 5.maí er mér að kenna! tek það alveg á mig ;) sorry pabbi!

Jáú.. júróvísjón ? eigum við eitthvað að ræða það eða ? stærsta hommahátíð sem haldin er ár hvert ?.. Lítil gay-pride ganga í Moscvu handtekin og sett í fangelsi.. að sögn Palla okkar .. sel það ekki dýrara en ég keypti það.. og segir bara nó comment á það.. en glotti samt út í annað.. hahaha!! talandi um sæta karlmenn.. eða stráka, þessi norsari er BARA 14 ára, já eða ókey.. hann er kannski eldri en samt! hann má eiga það að hann er algert krútt, og sjarminn er æði.. En hann kann ekki að syngja frekar en Ingó Ædol! úbs.. sorry.. slipped out.. hehe.. Ég fór samt í hörku júró partý til soffíu og siggeir þar sem við gæddum okkur á hoho og fengum svo bláberjaosta köku í eftirrétt ala svala.. mjög holl og ljúfeng.. sem og hoho sem siggeir grillaði.. Emma klemma stóð líka fyrir sínu, með því að ráðskast með foreldra sína og skemmta mér með krúttlegum grettum og uppátækjum.. þessi dúlla er náttúrulega tilvonandi núbelsverðlaunahafi ! því verður ekki neitað.. Annars er ég ennþá að bíða eftir að sjá mynd frá þessu kvöldi, því að siggeir tók uppá því að klæða sig í "hópátak valdísar" peysuna mína ;) sem við mikinn fögnuð viðstaddra var mynduð í bak og fyrir.. soffía ? eigum við að ræða það að deila myndunum eða ? ;) hahaha!

Heyrðu halló! Crossfit mótið um helgina síðustu.. var að dæma þrátt fyrir að vera á leið í próf.. Dr.Leifur Geir var ekki alveg sáttur með þetta hjá mér en var samt mjög glaður með að ég skildi vera með ;) Þetta er klárlega það besta sem maður gerir.. taka á því þangað til maður er orðinn svo máttlaus að mann langar að æla ;) haha.. ég skal sko vera með hér eftir ! það er ekkert annað í stöðunni.. mig langaði svo að fara í WOD-in að það var rugl.. en vissi að ef ég gerði það myndi ég æla og vera lengi að ná mér.. tók samt hörkuna á þetta og fór út að hlaupa þegar ég kom heim af leikunum.. þá varð ég ennþá glaðari að hafa EKKI tekið WOD-ið því að þolið mitt er týnt! Ég sá fyrir mér lungnaveikann PUG þegar ég svo til valt upp brekkuna hérna á Reynisvatnsveginum! ekki fögur sjón þar á ferð.. og nú eruðeir sjúkir í mann.. djisöss.. þetta þol verður hér eftir auglýst í LOST AND FOUND og þangað til einhver kemur með það til mín, æft í skjóli nætur þar sem enginn getur horft á mig og sagt að ég sé hlunkur á hraða skjaldböku! hihihi..

Jæja.. annars hlakka ég til að eyða sumrinu með vinum mínum og gera eitthvað kreisí skemmtilegt :)

og ef þú ert vinur minn og þykir vænt um mig vænti ég þess að þú komir í kaffi 13.júní ;)

Over and out!

~af því að mér finnst þetta svo fallegt lag...~Snjólaug Svala Grétarsdóttir

http://www.youtube.com/watch?v=pWK5f3yBRs4&feature=related
 
Because of you - Kelly Clarksson

I will not make the same mistakes that you did
I will not let myself cause my heart so much misery
I will not break the way you did
You fell so hard
I've learned the hard way, to never let it get that far

Because of you
I never stray too far from the sidewalk
Because of you
I learned to play on the safe side
So I don't get hurt
Because of you
I find it hard to trust
Not only me, but everyone around me
Because of you
I am afraid

I lose my way
And it's not too long before you point it out
I cannot cry
Because I know that's weakness in your eyes
I'm forced to fake, a smile, a laugh
Every day of my life
My heart can't possibly break
When it wasn't even whole to start with

Because of you
I never stray too far from the sidewalk
Because of you
I learned to play on the safe side
So I don't get hurt
Because of you
I find it hard to trust
Not only me, but everyone around me
Because of you
I am afraid

I watched you die
I heard you cry
Every night in your sleep
I was so young
You should have known better than to lean on me
You never thought of anyone else
You just saw your pain
And now I cry
In the middle of the night
For the same damn thing

Because of you
I never stray too far from the sidewalk
Because of you
I learned to play on the safe side
So I don't get hurt
Because of you
I tried my hardest just to forget everything
Because of you
I don't know how to let anyone else in
Because of you
I'm ashamed of my life because it's empty
Because of you
I am afraid

Because of you
Because of you

vinnan - æfingar - skólinn - vinirnir... í þessari röð..Snjólaug Svala Grétarsdóttir

Ég sit í tíma í GARS þessa stundina og hef eiginlega ekkert annað að gera en að blogga því að ég gleymdi gleraugunum mínum heima. Ég tók mér "veikindadag" í dag frá vinnunni af því að ég var svo dugleg í síðustu viku og hef eiginlega ekki stoppað til að ná andanum síðan ég kom suður.. það eru að verða hátt í tveir mánuðir síðan ég kom heim aftur..

Síðan ég kom suður hef ég farið á námskeið hjá vinnunni í Audit 1, fórum til Hveragerðis og gistum þar í tvo daga á Örkinni, lærðum allan daginn og á kvöldin var spjallað saman og reynt að kynnast.. :) Þrír dagar pakkaðir af endurskoðun og aðferðum við endurskoðun.. sumir myndu halda að þetta væri alveg drep leiðinlegt, en reyndar leið tíminn frekar hratt og við lærðum alveg helling.. :)

helgina eftir fórum við international ráðið, skiptinemar og buddiar til Eyja, ég fór í fyrsta skipti til Vestmanneyja í september :) þetta var fáránlega skemmtileg ferð að undanskildri sjóveiki og þeirri skemmtilegu staðreynd að ef ég drekk eitthvað sem er með alkahól innihald meira en malt þá verð ég bara veik.. þessi ferð verður því lengi talin svipuð ferð og detox ferðin með Jónínu Ben til Póllands.. fyrir utan það að hreinsunin hjá mér fór fram í formi ælu en ferðin með Jónínu snýst um að hreinsa út hina leiðina.. smart.. ég veit.. ég fékk nú samt smá þef af þjóðhátíð, greip bjórinn hans krumma og bjórinn hennar audi og velti mér í grasinu.. er það ekki annars það sem maður gerir á þjóðhátíð ?
Hrafn minn var samt rosalega duglegur að passa mig sem og yndið hann Rasmus.. og heilt yfir var þessi ferð alger snilld. Ég veiddi fyrstu lundapisjuna mína og kom henni í hendur mömmu Þórs míns sem var einmitt húsráðandi á gistiheimilinu sem við gistum á.. :)


Audi og Hrafn


Í vikunni á eftir komu mamma og elva suður og við fórum í pæjuferð til Minneapollis þar sem 5 dögum var eytt í Mall of america.. já takk fyrir.. vísakortið fékk að gráta.. ! Ég held samt í alvöru að kurteisi þeirra sem ég hafði samskipti við þarna úti hafi algerlega gert ferðina að því sem hún var.. já og það að ég hafi yfirleitt ekki þurft að snúa mér við til að hala niður úr klósettinu af því að það var eiginlega sjálfvirkt allstaðar.. hahaha.. ég og elva fundum tilvonandi eiginmenn okkar í Abercrombie & Fitch , djöfull fíla ég þá stefnu þeirra að hafa bara ungt,heilbrigt og myndarlegt fólk í vinnu.. Amazing.. :)
Við systurnar keyptum okkur árshátíðar kjóla og ég keypti mér auk þess útskriftarkjól í White house Black market sem er án efa ein af mínum uppáhalds prinsessubúðum núna.. :)
Auðvitað mætti ég líka í GNC til að kaupa Hydroxcut Maxi, þegar mamma sá það síðan fór hún og keypti ársbirgðir af þessu.. hahaha.. það er aldeilis sem maður smitar út frá sér! Tala af sér

MOA


Gula hættan

19.sept var síðan Hrisstingur í KPMG, hann gekk út á það að hlaupa um allt Borgartúnið (8.hæðir + bílakjallari) í ratleik sem skemmtinefndin okkar yndislega hafði skipulagt.. :) síðan bauð Hlynur Partner okkur heim til sín þar sem ég fékk að kynnast hinni rómuðu söngstemmingu hjá karlmönnum KPMG.. úff.. þeir byrjuðu að syngja með lögum úr græjunum kl.20.00 og hættu ekki fyrr en við fórum í bæjinn.. ! hressir.. :) ég sótti svo Krumma minn í securitas partý og einhverja nokkra vini hans og við fórum öll saman á Apótekið þar sem ég og krummi misstum okkur á dansgólfinu í þvílíkum trylling að svona hefur ekki sést sunnan heiða síðan Páll Óskar tryllti dansgólfið fyrir Eurovision 92! Ég get sko ekki beðið eftir að djamma með honum aftur.. svo kynntist ég líka vini Krumma sem var ekkert smá yndæll og gaman að tala við .. Denni heitir hann víst og ég hlakka mikið til að hitta hann aftur undir aðeins eðlilegri aðstæðum en á dansgólfi mansals og kókaíns á Apótekinu.. :)

Þá er komið að því að ræða síðustu helgi, eða helgina sem var að ljúka.. Krummi elskan fór til Þýskalands á BjórFest og tók mig ekki með.. piff.. nei djók.. hann veit að ég hefði ekki verið mikið í því að drekka bjór heldur bara borða súkkulaði eða eitthvað álíka óhollt.. En þess í stað fór ég á Fusion Fitness Festival og skemmti mér líka svona fáránlega vel! Þetta var fyrsta helgin í Fusion Akademíunni sem ég e,r í ofan á allt annað.. ég veit.. En þetta var fáránlega góð helgi, þó að ég hafi ekki gert neitt annað en að hreyfa mig og sofna með strengi.. :) Ég fór í tíma í Core Fitness sem eru styrktaræfingar á pulsubolta (ég vil meina að þetta sé stór limur en hver hefur sína skoðun á máli..) þessi pulsubolti heitir Body-Pod og er alger snilld.. ég keypti mér svona bolta og ætla sko að nota hann eins og ég get, fáránlega gott að gera magaæfingar, rassaæfingar og bakæfingar á boltanum.. Ég fór líka í tíma í K.O.BO. Conditioning hjá Jennifer Phillip, geðveikur tími sem var svona kick box, fokus, stöðvatími.. Svo fengum við að taka fókus á kennarana sem var alveg geðveikt.. :) Síðan fór ég í E-Power sem er svona svipað og Body-Pump, brennslutími með lóðum.. og að lokum á fyrirlestur hjá Fullfrísk meðgönguleikfimi.. Á sunnudeginum braut ég odd af oflæti mínu og fór í Fit-Pilates, nú get ég alveg sagt að það er ekki fyrir mig.. Síðan reyndi ég að fara í pallatíma með svona goove - hip hop ívafi.. EKKI FYRIR MIG.. það er pallatími.. hip hop er alveg fyrir mig en að gera einhver dansspor á pöllum er ekki ég.. mér finnst fólk sem getur þetta alveg amazing og ég er geðveikt ánægð með Erlu Perlu að geta þetta en ég er sko bara því miður ekki þessi týpa.. :oS

Í morgun bárust svo fréttir af því að Ríkisstjórn Íslands er orðinn stærsti hluthafi í Glitni banka, þeim tókst víst ekki að endurfjármagna sig og Ríkisstjórn Íslands lagði inn nýtt hlutafé sem gerði það að verkum að hlutir í bankanum hafa lækkað um sirka 90%. Það er að segja, þeir sem eiga hlutabréf í Glitni eiga núna eftir þessar aðgerðir sirka 90% lægri hlut en fyrir helgi. Hins vegar ef þetta hefði ekki verið gert þá ættu þeir hinir sömu líklega verðlausann hlut eftir sirka tvær vikur.. því miður.. Glitnir hefur verið skeindur af íslenska ríkinu.. smart.. fékk þessa mynd senda frá vinkonu minni áðan.. gaman hvað skrípamynda hönnuðir eru fljótir að taka við sér.. :oP

tvær vikur and counting!Snjólaug Svala Grétarsdóttir

það er ekkert annað .. bara tvær vikur í USA og við erum alveg að tapa okkur mæðgurnar úr spenningi.. mamma hefur aðallega verið að finna góða veitingastaði og elva sys hefur verið að skoða skómarkaðinn á þessum slóðum..
ég hlakka aðallega til að komast í gnc og almennilega íþróttabúð.. það verður alveg geðveikt..

fusion akademian byrjar síðan stuttu eftir að ég kem heim, get ekki beðið.. Nonni gamli einkaþjálfarinn minn verður með kennslu í herþjálfun og svo er möguleiki á því að erla verði með kick box tímann..! jisúss ég er að verða endalaust spennt fyrir þessu.. hins vegar hef ég aðallega verið að æfa ein í laugum, auglýsi hér með eftir æfingapartner.. jójó er svo bissí í vinnunni og saló, nancy, bjarney og hulda eru allar að æfa fyrir þrekmeistarann þannig að þær eru á spes æfingum .. anyone up for training ? ;)

annars var ég að mammast hérna heima áðan, tók mig til og bakaði geðveikt brauð af uppáhalds heimasíðunni minni cafésigrún.com hér er uppskriftin:

Grunnuppskrift að brauði
Gerir 1 brauð

  • 7 1/2 dl spelti
  • 5 dl ab - mjólk eða súrmjólk (minna ef ykkur finnst deigið verða of blautt, setjið einn desilítra í einu)
  • 2 dl haframjöl, (svo bætti ég sjálf við pecanhnetum, kanil og rúsínum...)
  • 2 msk vínsteinslyftiduft
  • 1 tsk heilsusalt (Herbamere)

    Aðferð:
  • Blandið þurrefnunum saman í skál.
  • Hrærið ab-mjólkinni eða súrmjólkinni saman við.
  • Setjið deigið í formkökuform sem er búið að klæða með bökunarpappír.
  • Bakið við 180 -190°C í 40 - 50 mín. (Þar til brauðið losnar frá mótinu.)

  • (Til að fá harða skorpu er gott að taka brauðið úr forminu síðustu 15 mín, snúa við og leggja á bökunarpappírinn)
  • Gætið þess að deigið sé ekki of blautt. Ágætt er að miða við að deigið festist ekki við skálina þegar það er hnoðað létt.
ég er eiginlega farin að trúa því sem Daði spaði sagði við mig um helgina eftir að ég var búin að fóðra hann rosalega á bláberjapæ og öðru sem ég hafði verið að dunda mér við að baka.. að börnin mín ættu eftir að verða frekar hamingjusöm og mett.. ég túlkaði það eiginlega sem hamingjusöm en feit.. ;) vona að íþrótta álfurinn í mér komi í veg fyrir heilsuspillandi offitu væntanlegra barna minni og þau verði frekar bara aktív og borði vel.. :) haha..

endurkoma soffíu byrjaði með tíma í maví á þriðjudaginn, mér lýst ekkert smá vel á það að ég er komin með partner í öll verkefni og það partner á sama róli og ég er! metnaðurinn er í botni sko.. :) endurfundir úr MA eru sem sagt í tímunum maví og gars.. :) síðan höfum við planað hádegis brunch með eyrúnu okkar og bumbulínu á mánudaginn.. hlakka ekkert smá til, hef ekki séð hana of lengi og get ekki beðið eftir að sjá bumbuna hennar.. það verður gott að hittast aftur og spjalla eins og í MA.. dásamlegt.. hlakka til.. :)

þú ert allt..Snjólaug Svala Grétarsdóttir

jæja, komin tími á smá blogg.. ég er nú búin að ná mér af þessu raddleysi og farin að tala eins og ég veit ekki hvað.. fór um daginn og keypti mér skemmtilega bók.. en það er bókin sex and the city um gerð myndarinnar og alla díteila í því hvaða smáatriði skipta skipta máli í myndinni.. auk þess sem það eru myndasíður aftast í bókinni þar sem listað er niður hvaða hönnuðir eiga heiðurinn af fötunum sem vinkonur mínar klæðast í myndinni.. sem er geðveikt :) ekkert smá kúl sko.. ;) ég get til dæmiscarrie sagt ykkur að beltið sem hún er með á miðju myndinni er vintage en það er hægt að finna það á ebay, eins og reyndar allt annað.. skórnir sem hún er í á fyrstu og annari mynd eru Dior Extreme.. Listum þetta niður.. á fyrstu myndinni er hún í Nina Ricci kjól og með Louis Vuitton tösku, miðju myndin er að undanskildum skónum öll vintage en loka myndin sýnir carrie í Nieves Lavi kjól, Armani bol, Tomas Maier peysu í skóm frá Valentino og með prada tösku.. jiminn eini hvað ég væri til í að lifa í þessum heimi.. kannski einhvertíman.. ;) allt í lagi að láta sig dreyma og stefna að því.. það hefst ekkert með því að trúa ekki á sjálfan sig..

Samt mjög töff líka taskan sem hún er með við græna vintage kjólinn, ef vel er að gáð sést einmitt að þarna er komin Eiffel turninn, rómantíkin.. en eins og allir Sex and the city aðdáendur vita þá sótti Mr.Big, Carrie til París eftir að hún hafði flutt þangað með evrópska listamanninum sínum.. að mig minnir.. ;) það var amk rosalega rómantískt..

það er svolítið spes að sjá hvað hún heldur sambandinu til streitu, gefur þessu annað tækifæri, þó að bæði hún hafi sært hann og hann hana.. þurfum við í alvöru að lenda í því að særa ástina okkar og verða særð áður en við áttum okkur á því hvað við viljum ? þarf ástin í alvöru að vera svona erfið ? eða lifi ég bara í einhverju sex and the city drama, þar sem vinkonur mínar ráðleggja mér eitt en hjartað dregur mig annað ? ? já og hvar eru mamma og pabbi carrie ? hvað hafa þau um þetta mál að segja ? vilja þau ekki vita hver þessi maður er sem hefur fangað hjartað hennar ?

~.~.~.~.~.~.~

Ég er að fara að taka á móti skiptistúdent frá Danmörku þegar ég kem loksins suður aftur, er að skemmta mér við að gera þétta dagskrá sem saman stendur af félagslífi, ræktinni, þolfimikennara námi, skóla, vinnu og nóg af stelpuspjalli.. auk þess sem ég er að skipuleggja ferð til kólimbíu :oS það verður brjálað að gera.. I can't wait!
En þessir skiptinemar sem ég tek á móti koma 15.ágúst, en þá er ég líka að mæta á fund með leiðbeinandanum mínum, Mr. Engilbertsson eins og ég vil kalla hann..

~.~.~.~.~.~.~

Ég fylltist örlítilli öfund um daginn, held ég hafi einmitt rætt það við einhvern að flestar stelpurnar sem ég þekki hér á Ak. frá því úr M.A. eða grunnskóla eru allar annað hvort komnar með barn og mann og íbúð, barn og mann, mann og íbúð eða mann og barn á leiðinni.. please select one of the options above.. hvenær lendi ég í svona pakka ? ekki það að þetta sé slæmur pakki .. þetta er eitthvað sem mig dreymir um.. en ég hélt samt í alvöru að ég yrði ein af þeim fyrstu til að fara út í þetta, hef alltaf verið pínu mamma í mér, gömul sál segja margir.. já, en ég varð pínu abbó um dagin einfaldlega útaf því að ég sá gamla vinkonu mína sem ég reyndar tala ekki við í dag, hún var að labba með eiginmanni sínum (já þau eru gift og ja hún er jafngömul mér) með litlu sætu kúluna sína þar sem bumbubúi vex og dafnar.. ég var samt bara abbó í smá tíma en svo varð ég rosalega glöð í hjartanu og fannst þetta æðislegt.. vona svo innilega að hún sé hamingjusöm, og efast reyndar ekki um það.. þetta er draumur flestra held ég.. :)

~.~.~.~.~.~.~

Elva systir og ég erum svo að gera okkur til fyrir bræðsluna í Borgarfirði.. :) hlakka rosalega til, fyrir utan það að við erum báðar jafn þrjóskar og þverar þannig að tjalduppsettningin á líklega eftir að taka á taugarnar.. en það lagast allt þegar ég heyri Damien syngja.. vildi óska að ákveðin einstaklingur væri þarna með mér til að hlusta á 9crimes.. en maður fær víst ekki allt í lífinu..
hlakka samt til að geta farið að hafa augun hálf lokuð..

,,Ever mine, ever thine, ever ours.."



~þig~
kv.svalan

ævintýraferð á mývatn..Snjólaug Svala Grétarsdóttir

elva systir, afi og amma og ég tókum okkur til og fengum okkur rúnt á mývatn í dag, það var reyndar rigning en við létum það nú ekki á okkur fá, settum rúðuþurkurnar á fullt og bölvuðum veðurfréttamönnunum í sand og ösku.. ;) hittum fyrir tvo eldri ferðamenn í stórugjá, þeir voru eitthvað að brasa við að skoða gjána þegar ég og elva reyndum að fullvissa þá um að það ætti að fara þarna ofaní og synda, ferðamennirnir héldu nú ekki og hlóu bara að okkur.. verst að þeir fá ekkert að upplifa þetta því að klárlega erum við ekki að djóka.. ætlum meira að segja báðar þangað seinna í sumar þegar gott veður.. elva náði síðan að smella þessari mynd af ömmu og afa á leiðinni aftur að bílnum..

afi og amma

þau eru svo yndisleg og góð, vona að ég verði svona þegar ég eldist.. :oD þau eru búin að vera saman síðan amma var 16 ára..

skotin.. takk.. :)Snjólaug Svala Grétarsdóttir

jæja, við tókum ákvörðun í dag að ferðinni væri heitið til kólimbíu í haust.. já.. ég er ekki að grínast, B.Sc. rannsóknin okkar mun greinilega teygja sig vel yfir fjárhag nemans.. en við erum að fjárfesta í menntun og guð hvað þetta verður ótrúlega gaman, lærdómsríkt og mikið ævintýri! við erum sem sagt að fara á cup of excellence ráðstefnuna að hitta kaffibændur í kólimbíu og ræða við þá um kaup og kjör þeirra og viljann til að búa til gæða vöru.. hlakka ekkert smá til, en núna tekur við gríðarlega mikil vinna við að búa til spurningalista og þýða hann yfir á spænsku. Auk þess að skipuleggja ferðina, svo fáum við að fara með Addý hjá Kaffitár í ferðir inn í sveitirnar og skoða ræktunarsvæðin. Úff.. vonum bara að FARC nái okkur ekki.. annars kem ég heim eftir svona 7-10 ár.. með tvo skæruliðakróga og orðin svo tryllt að ég fer og veiði mér matar í kringlunni, eins og hann sæmi sagði við mig í dag..

hins vegar bað hann mig einmitt líka að giftast mömmu sinni.. held að það sé ekki alveg ráðlagt þar sem hún er gift og gifting samkynhneigðra í hvítasunnukirkjunni öruglega ekki alveg við hæfi, að því undanskildu að gifta tvær konur sem ekki eru samkynhneigðar.. held að guð sé ekki alveg til í þannig djók sko.. held að sæmi hafi tekið þessu ágætlega.. enda er ég ekki að hafna mömmu hans.. hún er yndisleg kona.. held bara að tíminn og aðstæðurnar séu ekki alveg réttar.. :)

mig langar til að verða skotin aftur.. fá gæsahúð og fiðrildi í magann.. langar í endalaus kúr (eftir ræktina auðvitað) og sitja saman með fulla skál af ananas og jarðaberjum, hlusta á tónlist og gera eitthvað skemmtilegt um helgar.. mér líður doldið eins og ég sé vængbrotin, held það sé líka að stórum hluta af því að ég er ekki með trillurnar mínar hjá mér, en ég held að það sé líka af því að ég þarf svo mikið að fá að gefa af mér..

í gær setti ég inn myndband hérna.. þetta er sami gaur en annað lag.. búin að vera aðeins að skoða þennan söngvara.. held að hittarinn hans í síðustu færslu sé klárlega besta lagið hans en þetta er líka sætt..



kv.svalan

væntanlega sætasta lag sem ég hef heyrt..Snjólaug Svala Grétarsdóttir

fékk þetta sent frá fyrrum skólafélaga mínum sem ég hef ekki verið í sambandi við lengi.. takk teitur.. þetta lag er æðislegt. :)

sólin loksins farin að skína..Snjólaug Svala Grétarsdóttir

svakalegir strengir hafa tekið sér bólfestu í líkamanum mínum.. hvort sem er í öxlum, maga, baki, höndum eða fótum.. og ennþá mun það versna.. ;) hlakka til ..

ég get sko alveg sagt ykkur að í dag er ég fegin því að vera á ak. að því sögðu þá vil ég benda á þetta lag..



alveg elska þetta myndband, það gefur manni eitthvað svona; ,,já djöfull skal ég sigrast á þessu helvíti og drulla mér á lappir og halda áfram! " ef þið skiljið hvað ég á við..

stelpu pjáslurnar mínar eru á ferð og flugi, jójó og saló á hestamannamóti og nancy á spáni.. ég nefndi það einmitt við mömmu áðan að jójó og saló væru á hestamannamóti og henni varð á að spyrja: ,,og afhverju ? ekki eru þær hestamenn?" ég sagði nei.. en þeirra helsta áhugamál væri klárlega ekki hesturinn.. ;) nú er ég búin að láta þær hljóma eins og einhverjar sóðapjálsur (sem þær og eru) en að sjálfsögðu var tilgangur með þessari ferð á hestamannamót.. þær eru að kynna nýja fyrirtækið sem þær vinna hjá svo að þessi ferð er "strictly" business.. hins vegar er nancy sóðapjásla bara að sóla sig! vona innilega að hún sakni okkar þarna í sólinni.. ;)

ég hef verið sveitt að dansa sólardansinn fyrir hana eyrúnu bumbulínu, hún er nefnilega að koma heim á morgun og það á sko að vera sól á Akureyri í sumar.. takk fyrir pent.. svo að við getum farið í sund og sólað á okkur bumbuna saman.. ;) það er sko algert möst.. milli þess sem við förum svo á nátturunum að fá okkur ís ;) sem er einmitt hægt á Akureyri, það er sko alveg næsta stig fyrir neðan joggarann..

annað sem er að frétta er það að ég skráði mig á kennaranámskeið fusion fitness þannig að næsta haust ætla ég að læra að kenna þolfimi og fleira.. :) hlakka til ..

komin norður..Snjólaug Svala Grétarsdóttir

jæja, mánuður í ferðatösku, hagnýt upplýsingakerfi, efasemdir um B.Sc. ritgerðina, sólin sem undrandi reykvíkingar nutu þó.. þetta er allt afstaðið, rigningin er komin aftur til rvk og ég fór norður á akureyri til að reyna að njóta sumarsins og koma einhverju gáfulegu frá mér á blað...

ég hef ætlað mér í nokkurn tíma að skrifa góðum vini mínum en netsambandið hefur ekki alveg verið upp á marga fiska og eina skiptið sem ég hef komist á netið er í vinnunni.. og þá er maður ekki mikið að skrifa bréf til vina sinni.. ég byrja í "nýrri" vinnu á morgun, það er að segja hún er ný að þeim hluta að ég er að fara að vinna með fullt af nýju fólki þó að ég sé enn að vinna hjá kpmg en bara á akureyri..

ætla að setja inn æfingaplan hérna á síðuna og svo langar mig að benda fólki á að skoða woman's health mag.en það er linkur inn á síðuna hérna til hliðar, þar eru óþrjótandi upplýsingar um allt sem tengist heilsu og æfingu.. ég hlakka ekkert smá til að byrja að æfa á fullu hérna fyrir norðan..

en annað,svona fyrir þá sem eru að lesa hérna.. endilega kommentið.. er Bræðslan ekki alveg pott þétt málið í sumar ? 26.júlí Borgarfjörður Eystri, Damien Rice og vinkona mín hún Eivör..? hverjir ætla með ? Ég er sko búin að kaupa miða, bara svo að það sé á hreinu..

~ uppskriftir héðan og þaðan ~

Auglýsing

~slúðrarinn~

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...